Vala is... (1)Vala Rún Gísladóttir

...að fara til Íslands á morgun
...langar að kaupa sér fullt af sætum sumarkjólum en veit að hún á aldrei eftir að nota þá á Íslandi í sumar
...búin að fara í búðir 3 daga í röð án þess að kaupa eina flík, geri aðrir betur
...að fá leigjanda í heimsókn í fyrramálið - spennandi
...búin að ættleiða nýja plöntu, komum þá aftur að leigjandanum, það verður spennandi að sjá hvort að henni takist að halda blómaræktinni gangandi
...ekkert svo spennt fyrir fluginu
...best að fara að hlaða ipodinn til að lifa af flugferðina
...og kannski skúra gólfin, svo að leigjandanum ofbjóði ekki
...á eftir að sakna sólarlandaveðursins
...fer að vinna á mánudaginn
...hlakkar til að hitta fjölskylduna og skvísurnar

CIAO, Vala Hlæjandi

Spenningur (2)Vala Rún Gísladóttir

Vá það er aldeilis, bara vöknuð kl 8:00 prick og fannst ekkert sjálfsagðara en að fara á fætur... vildi að þetta væri jafn auðvelt þegar maður actually þarf að vakna en ég var alveg viss um að klukkan væri orðin ellefu...

Var að komast að því mér til mikillar gleði að búðirnar eru opnar á morgun! Yes! Svíarnir eru ekki jafn heilagir og við varðandi þjóðhátíðardaginn sinn... Var orðin örvæntingarfull að eiga bara þennan dag eftir í panikkbúðarhlaupum, þar sem gærdagurinn nýttist ekki alveg nógu vel, það er búið að koma of mikið af nýju dóti síðan ég byrjaði í prófunum þannig að maður varð bara að taka smá svona eye shopping í gær til að kanna stemmarann...

Farin að versla Saklaus

Flutningar (3)Vala Rún Gísladóttir

Þá er ég komin alla leiðina frá Stínu í Luma með sporvagni mot Gullmarsplan, grænu línunni mot Tcentralen og bláu til Hallonbergen! Hendurnar eru að detta af mér... en hálfur skrifborðsstóll ásamt kaupbæti (fersk íslensk slúðurblöð og sænsk pönnukökupanna) komin á nýja heimilið sitt :)

Restina af stólnum ásamt kaupbæti ætla ég svo að pikka upp á föstudaginn.

Á svona stundum væri gott að eiga bíl í Stokkhólmi.

Búin (4)Vala Rún Gísladóttir

Loksins loksins er ég komin í sumarfrí ! Svalur

Sex and the city (5)Vala Rún Gísladóttir

Búið að plana bíóferð á sunnudaginn.... újé... langt síðan ég hef hlakkað svona til að sjá einhverja mynd Koss

Áfram Ísland (6)Vala Rún Gísladóttir

Vá hvað ég elska þegar Ísland tekur Svíþjóð í handbolta. Bara best. Þetta verður snilldar ÓL! Ullandi

Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Photos

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Vala Rún Gísladóttir
  • Staður: Stokkhólmur
  • Um mig: Lifi hinu ljúfa námsmannalífi í landinu sem elskar kanelbullur, zlatan og dagbækur