Ég á afmæli í dag...Vala Rún Gísladóttir

... ég er gömul í dag... ég er 22 ára í dag! Svalur

Komin í símasamband...Vala Rún Gísladóttir

Helgin var góð, kíkti með Emelie og Mikaelu í bæinn eftir skóla á föstudaginn og fann mér geegjað flotta ammlisgjöf frá familíunni, brúna úlpu frá HH sem er ótrúlega hlý og æðisleg! Hlæjandi Fengum okkur síðan indverskt... um hádegið í gær komu Hjördis og Tryggve í heimsókn frá Linköping og byrjuðum á því að kíkja í bæinn og luncha, kíkt í búðir, kaffihús og svo fórum við í sund í Eriksdalsbadet og hittum Mikaelu og vinkonu hennar, tókum rennibrautarkeppni hehe...stóðum í svona korter í röðinni eftir að komast að með öllum 10 ára krökkunum... hmm kannski maður ætti ekki að vera að segja frá þessu! En já síðan fengum við okkur Sushi og tókum einn öl, svo heim í popp og kók og horfðum á Heartbreak Kid, þau voru að fara í siglingu til Helsinki núna rétt í þessu en ég ætla að skella mér í lærdóm og bandý...

Utan þjónustusvæðisVala Rún Gísladóttir

Ég er að skipta úr Comviq kontant yfir í abonnemang (frelsi yfir í áskrift), nú er ég með bæði kortin í höndunum, fékk abonnemangs-kortið í póstinum í morgun en hvorugt þeirra hefur virkað í allan dag. Maður er alveg handa og fótalaus án þess að vera með síma, fékk að hringja hjá Mikaelu áðan til að spurja hvað þeir væru að spá, "já blessuð, þetta verður komið í lag í kvöld, já við getum því miður ekki borið ábyrgð á svona löguðu" já nei hver gerir það þá! og til að toppa það sagði gaurinn" heyrðu má ég nota tækifærið og bjóða þér heimasíma hjá okkur" NEI takk...haha... einn bjartsýnn! Glottandi

Nú erum við komnar með rúm og eftir að skrifa skýrsluna og gera einhverja útreikninga, super duper, þetta verkefni var mun leiðinlegra en við héldum í byrjun og ekki mikið hægt að finna upp á nýjum "functions" fyrir svona rafmagnsrúm, alla vega ekki sem toppar það sem til er í dag, og flestir aðrir hópar með sömu hugmyndirnar. Vorum aðeins að ræða við einn af þeim sem er yfir "BS-kúrsinum" sem við tökum í vor, byrjum á því í janúar en vorum aðeins að mingla við fyrirtæki á Armada núna til að heyra í þeim hljóðið... spennandi spennandi... og já kúrsavalið komið fyrir vorönn Ullandi Í staðin fyrir japönskuna (sem ég hætti btw í eftir 3 tíma, var ekki að gera sig) þá valdi ég engelsk rapportskrivning núna á vorönn = kúrs sem þjálfar mann í að skrifa skýrslur á ensku og mun það eflaust nýtast meir í framtíðinni fyrir mig! aðrir kúrsar sem við tökum fyrir utan verkefnið eru Human Resources og Strategisk Ledning, en það eru skyldufög fyrir þá sem velja sérsviðið Industriell ekonomi sem ég ætla að taka.

Jæja nóg komið af rugli.... ohhh vona að síminn fari að komast í lag!

ciao, Vala

Valkvíði...Vala Rún Gísladóttir

...er ástandið sem ég er í núna. Hjälp!

JibbíVala Rún Gísladóttir

Jeeee...Produktframtagning 2 lokið Glottandi og ef við fáum góða einkunn í verkefninu þá hækka þeir prófeinkunnina...frekar sátt! þá er bara að bíða fram á fimmtudag til að fá einkunnir úr matstat... Armada djamm í kvöld á café opera, úú það verður geeggjaðSvalur

ciao...

Tyggjóofnæmi, whot?Vala Rún Gísladóttir

Já þú last rétt...tyggjó - ofnæmi... ég var að uppgötva að ég er með ofnæmi fyrir silfurlituðu Extra tyggjói! Fyrir þá sem ekki vita þá er ég með kattaofnæmi, og það uppgötvaði ég fyrst 6 árum eftir að við fengum Snúð, þegar ég flutti til Stokkhólms og kom heim um jólin og var þá allt í einu farin að klóra úr mér eyrun og ræskja mig óeðlilega mikið. Svo hvarf þetta skyndilega þegar ég kom út aftur... já þá loksins lagði ég saman tvo og tvo... heyrðu svo var mamma í heimsókn hjá mér um daginn og kom hún ekki færandi hendi með 2 tyggjó karton sem ég var búin að biðja hana um að kaupa í Fríhöfninni. Svo um kvöldið var ofnæmið mætt á svæðið, við vorum lengi að pæla í því hvernig í ósköpunum stæði á þessu, héldum svo bara að það hefði eitt kattarhár læðst með farangrinum hennar og væri að bögga mig. Ég hélt því reyndar fram að ég væri með ofnæmi fyrir mömmu, það myndi náttla líka vera raunhæft, ofnæmi á Íslandi, ofnæmislaus í Stokkhólmi, mamma kemur, ofnæmið mætt... þannig að já... splæst á klaritín og hætt að pæla í þessu. Svo er ég samt ekki að losna við þetta kláða ógeð í eyrunum, já mjög svo pirrandi, bara haldið áfram að úða í sig klaritíni... svo fór grunur minn að læðast á silfurlitaða Extra tyggjóinu og gerði ég smá kannanir á þessu og grunur minn reyndist réttur! BÖMMER... ég meina hvað á ég þá að gera við þessi 2 karton af tyggjó...

Auglýsi hér með eftir einhverjum sem er til í að ættleiða haug af tyggjópökkum! Glottandi 

ciao

Valfríður


HassperrurVala Rún Gísladóttir

Já þetta fær maður fyrir að hreyfa ekki á sér rassinn í hálft ár, kaupa sér kort í ræktinni og taka lyftingar, body pump og spinning á 4 dögum... hélt ég vissi betur!Ullandi Það er farið að verða kalt og dimmt úti núna, það var rigning áðan... úff já ég hlakka ekkert smá til að fara til Kanarí um áramótin Svalur Tilhlökkunin heldur manni á lífi þessa dagana...

Svo vil ég endilega fá komment á þetta blogg takk!Hlæjandi það er svo gaman að heyra í ykkur esskurnar...

kraaam Vala

JúhúúVala Rún Gísladóttir

Daginn daginn;) Sit hérna í Pippin tölvustofu í skólanum... finnst alltaf frekar fyndið hvernig þeir velja nöfnin á þessar stofur, þessar stofur heita t.d. Fylkessalar og öll nöfnin úr Lord of the Rings eða eitthvað álíka... nördahúmor já! Vorum að fá byrja á hópverkefni í produktframtagning þar sem við eigum að hanna adjustable bed (rafmagnsrúm) þannig að núna er ég á fullu í heimildasöfnun, gengur ágætlega bara, síðan bandý/rækting klukkan þrjú þannig að ég ætla að setja á fullan gír þangað til...
Mamma var að fara heim áðan, fór samferða henni að flugrútunni, hún er búin að vera hérna síðan á miðvikudag og bara svaka stuð hjá okkur, búnar að þræða búðirnar, fara út að borða og kaffihús í gamla stan, hittum vinafólk mömmu og pabba frá Örebro í gær og dóttur þeirra, við vorum saman á leikskóla, mjög gaman að hitta þau, hún býr líka í Stokkhólmi núna. Fórum síðan í bíó á frönsku myndina "Ensemble, c'est tout" sem var algjört æði. Mæli með henni. Alveg yndisleg mynd. Síðan heim í íslenskt lambalæri, bregst aldrei :) Það verður pínu tómlegt á Lötsjö núna en það er bara einn og hálfur mánuður þangað til ég kem heim um jólin og nóg að gera þangað til, úff ekkert smá stutt þangað til, tíminn flýgur bara...

Knús og kram

Vala

Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Photos

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Vala Rún Gísladóttir
  • Staður: Stokkhólmur
  • Um mig: Lifi hinu ljúfa námsmannalífi í landinu sem elskar kanelbullur, zlatan og dagbækur