Blogg um ekki neitt...Vala Rún Gísladóttir

...hvenig fannst ykkur svo Eurovision? ég hélt með Færeyjum! Svalur

Tihihi...Vala Rún Gísladóttir

...já það er sko alltaf gaman að missa af elektrolabb á mygluðum mánudagsmorgni í febrúar og fá í staðin að labba með sætum iðnaðarverkfræðigaur í maí :)

Já ég er heima...Vala Rún Gísladóttir

...eða réttara sagt í skólanum sem verður heimili mitt næstu vikurnar, eða þangað til ég er búin í prófum! Helstu fréttir af mér núna er að FÍNS partýið og aðalfundurinn 28.apríl heppnaðist mjög vel og ég var kosin formaður næsta árs:) Kannski ekki mikil samkeppni í gangi þar sem ég var eini frambjóðandinn en já. Það er mikið traust sem manni er falið og að sjálfsögðu mun ég gera mitt besta í að standa mig vel í þesu starfi! Ingibjörg kíkti í heimsókn um helgina og það er búið að vera svo geggjað veður hérna, við bjuggum nánast í bænum það var algjör sumarstemmning í gangi...bara snilld! Var að hugsa um að lána henni Shopaholic bókina mína en hún er því miður á Íslandi. Píndi hana svo með mér á einn fyrirlestur á föstudaginn, í varmaflutningsfræði, hverjum finnst það nú ekki skemmtilegt og á sænsku hehe...hún gat alla vega dáðst að sætu sænsku gaurunum á meðan ;) Á næstu grösum er svo júróvisjón að sjálfsögðu, fimmtudagspartý hjá Stínu og Frey og laugardagspartý hjá Rósu og Einari... fyrsta prófið mitt er 15.maí! það er alltof stutt í þetta...

en jæja knús og kram, alltaf gaman að fá svona mörg komment.. svo lofa ég að setja inn myndir bráðum, alltaf á leiðinni...hmms...

ciao!

Vala svala

Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Photos

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Vala Rún Gísladóttir
  • Staður: Stokkhólmur
  • Um mig: Lifi hinu ljúfa námsmannalífi í landinu sem elskar kanelbullur, zlatan og dagbækur