Kannanir (11)Vala Rún Gísladóttir

Hver kannast ekki við það að einhver skælbrosandi einstaklingur labbar upp að þér með pappírsbunka í hendi og býður þér að taka þátt í könnun "sem tekur bara í mesta lagi 5 mínútur er það ekki allt í lagi ? *smile* "... þá hef ég næstum því aldrei á samviskunni að segja nei, veit ekki afhverju. En það er ekki á hverjum degi sem manni er boðinn peningur fyrir það þannig að ég hafði heppnina með mér í dag og fékk útur því 50 sek að taka þátt í einhverju sem ég myndi varla kalla könnun, en það voru einhverjir hagfræðinemar úr SU sem voru að kanna nísku fólks og já... hefði getað grætt ennþá meira ef að einstaklingur A (ég var s.s. einstaklingur B) hefði ákveðið að vera örlátur og "splæst" á mig meira en hann hefði jafnframt tapað ef einstaklingur C hefði sett á hann skatt sem var margfaldarðu með þremur, og ég semsagt vissi ekki hver A og C voru það voru einhverjir random úti í bæ sem höfðu líka tekið þátt, en peningarnir voru semsagt fengnir frá einhverjum styrktaraðilum könnunarinnar... hljómar þetta nógu flókið? Alla vega fannst mér það en labbaði alla vega með 50 sek í burtu og splæsti á mig pizzu.

Fyrir utan þessa heppni mína í dag þá er búið að vera yndislegt veður og sól upp á hvern einasta dag, sem býður upp á laaaaangar lærdóms og hádegispásur í Borggården i KTH :) kósý

knús, Valfríd

Daginn daginn...(12)Vala Rún Gísladóttir

Er alveg hræðilega uppiskrppa með umræðuefni akkurat núna... þessi blogghugmynd var kannski ekki svo sniðug. Sakna svo Despó  í dag... akkuru þurfa allir uppáhaldsþættirnir mínir að fara í sumarfrí á sama tíma! Gráta búhú... jæja já ég er alla vega byrjuð að telja niður eins og sést...

kram, Vala



I´m here! (13)Vala Rún Gísladóttir

Já stundum dettur manni bara allt í einu í hug að blogga... er alveg gífurlega hress síðan í gær, þar sem hressileikinn náði hámarki í eurovision hitting hjá Stínu og Frey og svo Tentapub í KTH...tók næstseinustu lestina heim og fannst ég bara nokkuð öflug í djamminu, talandi um að vera að nálgast elliárin.. haha!  Hlæjandi Það ríkir þjóðarsorg í Svíþjóð núna en spurning hvað það endist lengi. Ég er á leið í próf á fimmtudaginn og svo aftur á þriðjudaginn 3.júní og flýg svo heim 7.júní... finnst allt of langt í þetta ! Sem þýðir að dúfubardagarnir halda áfram fram að því... ef einhver sem að les þetta kann ráð til að fæla burt dúfur af svölum þá vinsamlegast kommentið á þetta blogg... já þetta er öflugt framtak hjá mér í dag. Stefni á því að skella inn einni færslu á dag þangað til ég kem heim. Um allt og ekki neitt...

ciao, Vala

Ísland í sumarVala Rún Gísladóttir

Góða kvöldið :)
Jæja ætlaði bara að kasta inn einu bloggi hérna, það helsta að frétta af mér er s.s. að ég er byrjuð í nýjum kúrs og er með 1000 blaðsíðna bók um Strategy sem bíður spennt eftir að ég lesi hana, náum líklegast að klára "BS" verkefnið okkar í næstu viku og svo ætla ég að kíkja með Rósu í heimsókn til Hjördísar í Linköping næstu helgi, svo í lok apríl er Valborg þar sem við stelpurnar úr skólanum ætlum að fara til Uppsala, þar verða einhver þúsund stúdenta saman komnir að djamma í 2 daga 8) Svo ætlar hún mamma að koma í heimsókn frá 2.-10. maí og verður það ótrúlega gaman. Þá munum við flytja verkefnið okkar, svo eru það bara blessuð prófin og kem ég heim til Íslands 7.júní :!:

Smá uppdeit af mér hérna.

KNÚS
Vala

Heim um páskanaVala Rún Gísladóttir

Ég var að bóka mér miða heim um páskana, verð í viku 18.mars - 25.mars Hlæjandi það verður nice

Gleðilegt nýtt ár :)Vala Rún Gísladóttir

Og takk fyrir það gamla !

Ég kom heim frá Tenerife í gær og fer til Stokkhólms á morgun. Nóg að gerast Svalur !

BloggpásaVala Rún Gísladóttir

Kannski kominn tími á það fyrir löngu... ekki mikið að ske á þessari síðu!

Gangi ykkur vel í prófunum og jólastússinu og hlakka til að sjá alla í Reykjavík um jólin Brosandi

kv. Vala jólaálfur

Aðventa, jólagjafir...próf...Vala Rún Gísladóttir

Þá fer að styttast í að allt gerist, það er bara orðið svo lítið að gera í skólanum núna að það er erfitt að vera stressaður, sem er bara gott mál :) Nema jú BeachJól 07-08 eru enn ekki farin á eins gott skrið og maður hefði viljað, fólkið á Kanarí um áramótin verður bara að fyrirgefa það ... Það var gott djamm á föstudaginn sem átti fyrst að vera risa afmælispartý en fólkið í vélaverkfræðideildinni er bara of mikið fyrir reglur og alls konar sænskt skrifræðisrugl til að það sé hægt að leigja salinn þar... leiðinlegt samt að við fengum bara að vita um þessar reglur þremur dögum áður en átti að halda það! Var svona nett pirruð. En það þýðir lítið að gera mál úr því. Á sunnudaginn ætlum við að halda upp á árs afmæli FÍNS og verður svona aðventufílíngur í því. Svo verður náttla lumað á óvæntum uppákomum þar... spennandi.

ciao

Ég á afmæli í dag...Vala Rún Gísladóttir

... ég er gömul í dag... ég er 22 ára í dag! Svalur

Komin í símasamband...Vala Rún Gísladóttir

Helgin var góð, kíkti með Emelie og Mikaelu í bæinn eftir skóla á föstudaginn og fann mér geegjað flotta ammlisgjöf frá familíunni, brúna úlpu frá HH sem er ótrúlega hlý og æðisleg! Hlæjandi Fengum okkur síðan indverskt... um hádegið í gær komu Hjördis og Tryggve í heimsókn frá Linköping og byrjuðum á því að kíkja í bæinn og luncha, kíkt í búðir, kaffihús og svo fórum við í sund í Eriksdalsbadet og hittum Mikaelu og vinkonu hennar, tókum rennibrautarkeppni hehe...stóðum í svona korter í röðinni eftir að komast að með öllum 10 ára krökkunum... hmm kannski maður ætti ekki að vera að segja frá þessu! En já síðan fengum við okkur Sushi og tókum einn öl, svo heim í popp og kók og horfðum á Heartbreak Kid, þau voru að fara í siglingu til Helsinki núna rétt í þessu en ég ætla að skella mér í lærdóm og bandý...

Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Photos

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Vala Rún Gísladóttir
  • Staður: Stokkhólmur
  • Um mig: Lifi hinu ljúfa námsmannalífi í landinu sem elskar kanelbullur, zlatan og dagbækur